Thursday, June 02, 2005

Ferð á Fimmvörðuháls

Fífurnar fara á Fimmvörðuháls föstudaginn 10. júní n.k.
Lagt verður af stað frá Skógum með rútu kl. 15.30 inn í Bása. Þaðan verður hlaupið eða gengið yfir að Skógum aftur. Reikna má með að ferðalagið yfir hálsinn taki 3-5 tíma, allt eftir því hversu hratt menn fara yfir.
Rútukostnaður verður að lágmárki 1500 kr.
Vinsamlegast látið Kötu (557 4242) eða Sigga Þórarins (860 7507) vita eigi síðar en á mánudag 6. júní ef þið hafið áhuga á að taka þátt.
ÞESSI FERÐ HENTAR BÆÐI FYRIR HLAUPARA OG RÖSKA GÖNGUMENN.

2 Comments:

Anonymous Björg said...

Útlit fyrir þokkalegt veður og því er reiknað með því að fara. Líklega best að vera útbúinn eins og í vetrarhlaupi og muna eftir drykkjarbeltinu. Vera má að grill verði á staðnum og svo komi hver með mat fyrir sig en það ræðst á morgun, miðvikudag. Ekki búið að ganga frá sturtumálum, hótelið ekki opnað ennþá en síðast gafst kostur á að fara í sturtu í félagsheimilinu. Verið er að kanna þann möguleika. Frekari fréttir á morgun, miðvikudag.

9:04 AM  
Anonymous Njörður said...

Þakka fyrir daginn. Þetta var gaman. Þetta var tilbreyting. Þetta var hátt uppi.
Þegar Eyjafjallajöklull og Goðabunga eru orðnar hæðir í landslaginu hlýtur maður að vera kominn hátt upp.
Það var maður líka. Góð æfing og gaman að fara í svona stórum hóp upp á Hálsinn og niður aftur.

Kveðja Njörður og Lísa.

11:22 AM  

Post a Comment

<< Home